Eneloop Pro – AA hleðslurafhlöður
Eneloop Pro – AA hleðslurafhlöður

Eneloop Pro – AA hleðslurafhlöður

Fullt verð 3.450 kr Sparaðu 0 kr
12 á lager

Eneloop pro eru frábærar hleðslurafhlöður sem framleiddar eru af Panasonic. Eneloop pro rafhlöðurnar hafa fengið frábæra dóma um allan heim og eru mjög endingagóðar.

Eneloop pro rafhlöðurnar eru einar af bestu hleðslurafhlöðum sem fást á markaðnum í dag. Einnig eru þær mjög vistvænar þar sem þær koma forhlaðnar með sólarorku og eru endurvinnanlegar.

Panasonic gefur upp að hægt er að hlaða eneloop pro rafhlöðuna allt að 500 sinnum. Einnig halda þær hleðslu afar vel, eneloop pro rafhlaðan heldur 85% af hleðslunni sinni í allt að 1 ár í geymslu. Þannig að þótt að rafhlaðan fái að standa mjög lengi heldur hún hleðslunni sinni vel miðað við aðrar hleðslurafhlöður. Eneloop pro rafhlaðan vinnur afar vel við allar aðstæður og hefur sýnnt að hún vinnur einstaklega vel í kulda. Á notkunarsviðinu 0°C til -20°C er vinnsla eneloop pro rafhlöðunar óaðfinnanleg.

Eneloop pro rafhlaðan er mun afkastameiri en venjuleg rafhlaða. Að jafnaði er hægt að taka mun fleyri myndir með eneloop pro rafhlöðu á rafræna myndavél en ef notaðar væru venjulegar rafhlöður. Eneloop pro rafhlöðurnar hennta afar vel í tæki sem draga mikinn straum hverju sinni eða eru í stanslausri notkun t.d. myndavéla flass, þráðlaus lyklaborð og mýs, stýripinna eða fjarstýrð leikföng.

Einn besti kosturinn við eneloop rafhlöðurnar eru há spennustaða þeirra. Það slökknar á mörgum tækjum þegar spennan er orðin lægri en 1.1 Volt. En eneloop heldur sínu spennustigi í langan tíma og fer aðeins undir þessi mörk rétt áður en hleðslan tæmist.

Að skipta yfir í hleðslurafhlöður sem þessa er ekki aðeins spurning um peningasparnað eða hentugleika. Heldur er það mun umhverfisvænna en að kaupa einnota rafhlöður.

Hægt er að hlaða allar rafhlöðurnar okkar í öllum hleðsludokkunum sem við bjóðum upp á. Þú finnur hleðsludokkur hér.

ATH: Við mælum aldrei með að hlaða þessa týpu af rafhlöðum á meira en 0.5 Amper straum.

Nánari upplýsingar um Eneloop pro – AA hleðslurafhlöður.

  • Framleiðandi: Panasonic
  • Týpa: Eneloop Pro
  • Gerð: AA
  • Magn í pakkningu: 4stk
  • Lágmarks mAh: 2500
  • Volt: 1.2V
  • Afhleðsla: 85% eftir 1 ár
  • Hleðslufjöldi: 500 hleðslur
  • Koma forhlaðin: 
  • Hillulíf: 10 Ár

Við bjóðum upp á nokkrar mismunandi leiðir þegar kemur að afhendingu á pöntuninni þinni.

Afhendingarleiðir í boði:

  • Pöndun send með Íslandspósti á næsta pósthús eða póstbox
  • Pöntun send með Íslandspósti heim að dyrum
  • Pöntun heimsend á Akureyri í póstnúmerum 600 og 603
  • Pöntun sótt í vöruhús - Njarðarnes 6, 603 Akureyri á virkum dögum.

Pöntun send með Íslandspósti á næsta pósthús eða póstbox

  • Sent á næsta pósthús / póstbox
  • Fer samdægurs á pósthús á virkum dögum ef pantað er fyrir 15:30, annars næsta virka dag
  • Rekjanleg sending

Verð: 900 kr.

Pöntun send með Íslandspósti heim að dyrum

  • Fer samdægurs á pósthús á virkum dögum ef pantað er fyrir 15:30, annars næsta virka dag
  • Sent heim að dyrum með Íslandspósti
  • Ef heimkeyrsla er ekki í boði þar sem viðskiptavinur býr fer pöntun á næsta pósthús
  • Það er á ábyrgð viðskiptavinar að vita hvort heimkeyrsla sé í boði hjá sér

Verð: 1.300 kr.

    Pöntun heimsend á Akureyri í póstnúmerum 600, 603 og 606

    • Við keyrum pöntuninni til þín
    • Keyrt út milli klukkan 16:00 - 18:00 á virkum dögum
    • Í boði fyrir Póstnúmer 600 og 603

    Verð: 600 kr.

      Pöntun sótt í vöruhús

      • Viðskiptavinur getur sótt pöntun í vöruhús okkar, Njarðarnesi 6, 603 Akureyri, á virkum dögum milli klukkan 14:30-15:30.
      • Henti sá tími illa skal hringja í síma 419-2303 og óska eftir öðrum tíma.
      • Viðskiptavinur fær tölvupóst þegar að pöntun er tilbúin til afhendingar.
      • Ekki er hægt að sækja pöntun fyrr en staðfestingar tölvupóstur hefur verið sendur.
      • Pantanir sem lagðar eru inn eftir klukkan 15:30 á virkum dögum eða um helgar verða klárar til afhendingar næsta virka dag.

      Verð: Frítt

      Hafir þú einhverjar spurningar varðandi afhendingarmáta getur þú sent okkur skilaboð á Facebook, í tölvupósti info(hjá)emarket.is eða í síma 419-2303 á opnunartíma skrifstofu 09:00-15:30